Verðskrá
Námskeiðin okkar og kortin eru inni í Sportabler. Þar getur þú valið áskriftarmöguleika eða skráð þig á námskeiðin okkar.
Sjálfsrækt á Sportabler
Áskriftarkort
10,900,- á mánuði
3 mánaða binditími. Uppsögn 1. mánuður.
Gildir í alla opna tíma.
stakur tími
2500,-
Gildir í einn opinn tíma.
10 skipta kort
19,900,-
Gildir í alla opna tíma.
Gildir í þrjá mánuði.
*Einkatímar eru í boði. Vinsamlega sendu fyrirspurn með fjölda iðkenda, fjölda tíma og óskir um tímasetningar á sjalfsraekt@gmail.com og við munum hafa samband.
ALMENNIR SKILMÁLAR:
*Ef viðskiptavinur kaupir kort eða tíma í Sjálfsrækt samþykkir hann eftirfarandi skilmála:
Kaup á kortum
-
Ekki er hægt að skila eða yfirfæra keyptan aðgang í stöðinni.
-
Ekki er hægt að deila með öðrum iðkendum korti eða aðgangi í stöðina.
-
Allir iðkendur verða að eiga sinn eigin reikning inni í bókunarkerfi Sjálfsræktar á Sportabler. Aðrir geta ekki notað sama netfang eða verið með aðgang að sama reikningi.
-
Öll kaup eru endanleg.
-
Sjálfsrækt áskilur sér rétt til að breyta tímatöflu með stuttum fyrirvara.
-
Sjálfsrækt áskilur sér rétt til að breyta verðskrá og skilmálum án fyrirvara.
-
Áskrift þarf að segja upp nema annað sé tekið fram. Í boði er áskrift með eins mánaða uppsagnarákvæði að fyrstu 3 mánuðum loknum (ótímabundinn samningur). Uppsögn þarf að berast skriflega til sjalfsraekt@gmail.com.
Annað
-
Sjálfsrækt gerir sitt besta til að byrja og ljúka tímum á réttum tíma. Fyrirvari er gerður um breytingar á tímatöflu en hægt er að fylgjast með virkri tímatöflu á heimasíðu Sjálfsræktar og í Sportabler.
-
Það er á ábyrgð iðkanda að tilkynna kennara um meiðsl, veikindi eða ástand sem mun hafa áhrif á æfingu iðkandans.
-
Með því að samþykkja þessa skilmála staðfestir iðkandinn, að samkvæmt bestu vitund, sé honum óhætt að stunda hreyfingu og að engin sérstök hætta búi af því heilsufarslega. Iðkandi æfir á eigin ábyrgð.
-
Iðkandi stundar æfingar á eigin ábyrgð og firrar Sjálfsrækt allri ábyrgð á hugsanlegum slysum eða meiðslum sem kunna að eiga sér stað, sem ekki verða rakin með beinum hætti til mistaka eða vanrækslu af hálfu Sjálfsræktar, stjórnenda stöðvarinnar eða starfsmanna hennar.
-
Sjálfsrækt áskilur sér rétt til þess að víkja þeim úr stöðinni sem ekki ganga sómasamlega um eða brjóta af sér í stöðinni eða gagnvart öðrum viðskiptavinum og starfsfólki.
Eigur og aðgangur
-
Sjálfsrækt ber ekki ábyrgð á persónulegum eigum iðkenda.
-
Útidyrahurð Sjálfsræktar getur verið læst við upphaf hvers tíma. Af öryggisástæðum, leyfum við ekki fólki að koma seint inn í tíma og mælum sterklega gegn því að fólk fari fyrr úr tíma.
Trúnaður
-
Sjálfsrækt heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskipti. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Myndataka
-
Sjálfsrækt áskilur sér rétt til að taka myndir af iðkendum í húsum Sjálfsræktar til nýtingar í markaðssetningu og kynningu á stöðinni. Ef iðkandi fer sérstaklega fram á að ekki séu teknar myndir af sér í slíku skyni, skal hann láta Sjálfsrækt vita af því með skriflegum hætti.