Jóga Nidra – samvera með unglingnum
Taktu unglinginn með í nærandi gæðastund í Jóga Nidra á 4 vikna námskeiði.
Jóga Nidra er leidd djúpslökun sem hjálpar m.a. til við að losa um streitu, efla einbeitingu, bæta svefn og auka almenna vellíðan.
Hvernig fer Jóga nidra fram?
Legið er á mjúkum dýnum á gólfi, notast er við púða til stuðnings við líkamann og í boði er að nota teppi og augnhvílur. Kennari leiðir iðkendur inn í djúpa slökun og hugleiðslu. Áherslan er lögð á slökun og að njóta þess að vera.
Fyrir hverja er þetta námskeið?
Alla þá sem vilja nærandi samveru með unglingnum. Foreldrar og forráðamenn, ömmur og afar, frænkur og frændur…..
Kortið gildir fyrir 1 fullorðinn og 1 ungling, 1x í viku í 4 vikur.
Hver er ávinningurinn?
Sefar og slakar á taugakerfinu og heilar líkama og huga. Betri líðan og bættur svefn. Getur hjálpað til við andlegri og líkamlegri vanlíðan. Eykur almenna vellíðan.
Næsta námskeið: 4 vikur
Miðvikudagar kl. 17.45
12. febrúar – 5. mars
Kennari: Valdís Jósavinsdóttir
Jóga Nidra - Samvera með unglingnum
Verð kr 19.900
Miðvikudagar kl. 17.45