Boltar og bandvefslosun
Á þessu námskeiði notum við nuddbolta og framkvæmum sjálfsnudd sem miðar að því að losa um bandvefinn, auka hreyfanleika og vellíðan í líkamanum og losa um spennu og verki.
Hvað verður gert á námskeiðinu?
Á námskeiðinu erum við að nota nuddbolta til að framkvæma sjálfsnudd sem miðar að því að mýkja bandvefinn. Einnig læra iðkendur góðar og gagnlegar æfingar til að auka hreyfanleika sem síðan skilar sér í aukinni líkamsvitund og bættri líkamlegri líðan.
Fyrir hverja?
Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja losa um spennu í vöðvum, auka liðleika og byggja upp grunnstyrk. Frábærir tímar sem henta t.d. þeim sem eru að byggja sig upp eftir kulnun eða meiðsli, sem og þeim sem kjósa eða þurfa af einhverjum ástæðum að fara rólega í gegnum líkamsþjálfun.
Hver er ávinningurinn?
Aukin hreyfifærni, liðleiki, endurheimt og almenn vellíðan.
Næsta námskeið: 6 vikur
13. janúar – 17. febrúar
Kennarar: Ýmsir
Boltar og bandvefslosun
Mánudagar og fimmtudagar
kl. 16.30 – 17.30