Boltar og mobility

Hér sameinum við tvo vinsæla tíma Sjálfsræktar, mobility og bolta bandvefslosun. Markmiðið er að gefa fólki tækifæri til að auka hreyfanleika og vellíðan í líkamanum og losa um spennu, bólgur eða verki í rólegum tímum.

Hvað verður gert í tímunum?
Í þessum tímum er notast við nuddbolta til að framkvæma sjálfsnudd sem miðar að því að mýkja bandvefinn. Einnig læra iðkendur góðar og gagnlegar æfingar til að auka hreyfanleika sem síðan skilar sér í aukinni líkamsvitund og bættri líkamlegri líðan.

Fyrir hverja?
Tímarnir henta öllum þeim sem vilja losa um spennu í vöðvum, auka liðleika og byggja upp grunnstyrk. Frábærir tímar sem henta t.d. þeim sem eru að byggja sig upp eftir kulnun eða meiðsli, sem og þeim sem kjósa eða þurfa af einhverjum ástæðum að fara rólega í gegnum líkamsþjálfun.

Hver er ávinningurinn?
Aukin hreyfifærni, liðleiki, endurheimt og almenn vellíðan. 

Boltar og mobility

Miðvikudagar kl. 12.10 – 12.50

Fimmtudagar kl. 16.30 – 17.30

0
    0
    Your Cart
    Your cart is emptyReturn to Shop