Mobility movement námskeið

Hvernig hljómar að verða frjálsari í hreyfingum í daglegu lífi sem og þeim áhugmálum sem þú stundar?

Á þessu morgun námskeiði sameinum við liðleika- og styrktarþjálfun sem eykur hreyfigetu og gerir okkur færari í hreyfingum daglegs lífs sem og sérhæfðari þjálfun og íþróttaiðkun.

Æfingarnar miða að því að auka stöðugleika og stjórn á vöðvum kringum liðamót sem og auka liðleika.

 

 Fyrir hverja er mobility movement?

Á þessu námskeiði lærir þú góðar og gagnlegar æfingar til að auka hreyfigetu, liðleika og styrk og sérstök áhersla verður lögð á mjaðmir, hrygg og axlir. Okkar markmið er að hafa gaman í hreyfingunni við tölum alltaf um að ,,leika okkur” þegar við erum mætt að veltast um á gólfinu í Mobility movement.


Hver er ávinningurinn?

Aukin hreyfifærni og – geta, liðleiki, styrkur, endurheimt og almenn vellíðan.

Með notkun æfinganna sem þú lærir muntu upplifa aukið frelsi og vellíðan í líkamanum og jafnvel losna við verki og eymsli sem þú hefur verið að glíma við.

*Aukinn hreyfanleiki og hreyfigeta spila gríðarlega stórt hlutverk í meiðsla forvörnum. Einhæft hreyfimynstur hvort heldur sem er í daglegu lífi eða við íþróttaiðkun safnast saman og veldur ójafnvægi í líkamanum. Með aukinni hreyfigetu minnka líkur á meiðslum ásamt því að allar hreyfingar verða skilvirkari.  Aukinn hreyfigeta mun skila betri hreyfingum og betri nýtingu í gegnum vöðva líkamans.

6 vikna námskeið
16. janúar – 20. febrúar
Kennari: Guðrún Arngríms

Mobility movement námskeið

 

Fimmtudagar kl. 06.00 – 07.00

0
    0
    Your Cart
    Your cart is emptyReturn to Shop